Mæling Covid-19 mótefna í blóði eftir bólusetningu  (Anti SARS-CoV-2 S) og/eða Covid-19 sýkingu.

Eftir bólusetningu með SARS-CoV-2  eða Covid-19 sýkingu myndar líkaminn sérhæfð mótefni af IgM og IgG tegund gegn ákveðnum hlutum s.s. broddum (spike) veirunnar.

Talið er að styrkur mótefna í blóði gefi ákveðnar vísbendingar um vernd fyrir frekari Covid-19 sýkingu.

Það getur verið mjög einstaklingsbundið, hversu mikið magn mótefna myndast eftir bólusetninginguna/sýkinguna, en yfirleitt er hámarksmyndun náð eftir þrjár vikur.

Því er mælt með að láta a.m.k.  þrjár vikur líða frá bólusetningu, þar til styrkur mótefna er mældur í blóði.

Við mælinguna eru notuð hvarfefni frá Roche Diagnostics, sem er sama aðferð og notuð er á Sýkla – og veirufræðideild Landspítalans.

Öllum er frjálst að koma í mælingu mótefna og þarf ekki beiðni frá lækni.

Sjúkratryggingar Íslands taka ekki þátt í rannsóknakostnaði og þurfa sjúklingar að greiða 5.100.- fyrir mælinguna.

Að mælingu lokinni verða niðurstöður sendar inn í Heilsuveruna.